Eldibrands Esmeralda
25.maí 2007
Eldibrands Esmeralda "Essie" er minn fyrsti Norski Skógarköttur, hún er undan Rauðahóla Erlin og Vetrarheims Búa. Essie sá alveg til þess að Skógarkettirnir yrðu að stórri ást. Hún er afskaplega róleg læða, hún heldur sig mest hæga svona yfir hádaginn meðan mesti hávaðinn og umgangurinn er, en um leið og öll aukabörn eru farin, restin af liðinu komið í ró þá kemur hún og kúrir sig á sófabakinu hjá manni. Hún er ekki mikið fyrir það að láta halda á sér en klapp og klór er alltaf vel þegið og er maður verðlaunaður með háværu mali.
Það heyrist ekki mikið í þessari dömu (fyrir utan malið), það er ekki nema hún sé að fylgjast með fuglahóp útum gluggann sem að eitthvað heyrist í henni sem líkist mjálmi, það er þó mjög lágvært og varla greinalegt. Aftur á móti heyrist VEL í henni þegar Blámi tekur sig til og fer að stríða henni, hún er ekki mikið að fíla hamaganginn í þessu apaketti frænda sínum.
Essie er ekki mikið matargat og hefur verið helst til grönn fyrir minn smekk, það er kannski helst að hún borði vel ef það er fiskur á boðstólnum eða kjúklingur sem stökk upp á vinsældalistann eftir að hún varð kettlingafull. Þá gerði hún sér lítið fyrir og hoppaði uppá borð til mín til að smakka úr pönnunni. Og þegar fiskurinn er kominn ofaní pottinn er daman mætt til að sjá til þess að eitthvað af honum renni ofaní hennar maga.
Essie eignaðist sitt fyrsta got 27/4 2009 og er alveg framúrskarandi mamma.
Annað got hennar var 13/2 2010 og einnig hennar síðasta. Daman ætlar að njóta þess að vera letihaugur hér eftir.