Eldibrands Blátoppur
17.nóvember 2007 - 14.desember 2009
Eldibrands Blátoppur "Blámi" var ást við fyrstu sýn, þegar ég sá hann fyrst á sölusíðu skógarkatta varð ég að bíta í hnúgana en var afskaplega fegin að hann væri frátekin því ekki nóg með að ég er svakalega svag fyrir pabba hans heldur var hann í algerum drauma lit.
Blámi er svakalega mannelskur og er hann alltaf mættur fyrir framan hurð hjá dótturinni þegar á að fara vekja hana í skólann, áður en ég kemst að er hann búin að kúra sig í andlitið á henni. Hann fer heldur ekki fet frá henni meðan hún er að undirbúa sig í skólann og finnst afskaplega gott að kúra hjá henni, ekki er verra ef hún skilur smá jógúrt eftir handa honum til að smakka á (sem gerist ansi oft).
Blámi er líka einstaklega hrifin af öllu sem hreyfist, hann fagnar öllum voffum sem koma í heimsókn með því að nudda sér upp við þá og er fljótur að fagna þeim smábörnum sem hafa komið í heimsókn.
Þegar hann var nýkomin til okkar fékk hann alltaf að leggjast á spena hjá Essie, en hann hefur ennþá gífurlega sogþörf, sýgur kodda, buxur, bakið á manni ef útí það er farið, þegar hann var smástubbur fékk hann nefnilega smá bela.
Blámi er gífurlegt matargat, og kemur hann á harðaspretti þegar ég set í skálina á morgnana, og er yfirleitt lengi að eftir að Essie er farin. Einnig er hann ávallt mjög spenntur fyrir öllum aukabitum sem Flóki fær.
Blámi og Flóki eru bestu vinir, þeir hlaupa hér um í eltingaleikjum og slást þess á milli. Einnig finnst þeim ofboðslega gott að lúra saman í sófanum.
Gaurinn er einnig ansi hrekkjóttur og gengur stundum undir nafinu Hrekkjusvínið, hann skemmtir sér afskaplega vel við að stríða Essie og meðan hann fékk að fara út sást til hans hrekkja kettina í hverfinu.
Hann er mikið uppáhald hjá gestkomandi, sérstaklega litlum gestkomandi enda einstaklega blíður og ljúfur kisi.
Blátoppur minn, þessi ljúfi strákur, varð undir bíl þann 14. desember 2009 ekki hægt að segja en að hans sé sárt saknað!