Sýning og uppfærslur 01/04/2012
Þá er frábærri sýningarhelgi lokið og allir komnir heim sáttir og sælir. Setti inn sýningaúrslitin hjá Oscari og Hafrúnu :) Og eru þau að finna á þeirra síðu Hér hjá Oscari og Hér hjá Hafrúnu. Oprah fer svo heim til sín í kvöld eftir notalega helgi þar sem við erum búnar að knúsast og kúrast (milli þess sem Eldey og Hafrún hrekkja hana). Oprah er svo komin með sína eigin síðu Hér. Post Title. 26/03/2012
Nú eru allir kettlingarnir komnir með heimili. Við erum samt svo heppin að strákarnir ætla að vera heima út vikuna svo er það bara næstum tómt kotið. Uppfærsla 28/02/2012
Uppfærsla á kettlingasíðunni. Nýjar myndir/New photos 30/01/2012
_Komnar nýjar myndir af kettlingunum sem eru 9.vikna í dag. Þau stækka óðfluga og eru ótrúlega fjörug og skemmtileg. Í lok desember eignuðust þau fóstursystkin sem eru tveir húskattaketttlingar á svipuðum aldri, munar örfáum dögum. Þeim vantaði mömmu svo við Eldibrandsræktun skiptum með okkur 4 kettlingagoti. Annar húskattakettlingurinn flutti svo að heima í gær á nýtt heimili en hinn er enn hérna heima, ef einhvern langar í skemmtilegan svartan grallara. New photos of the kittens wich are 9.weeks old today. They are growing rapidly and are extremely lively and fun. At the end of December they got foster siblings are two kittens from Kattholt of similar age, the difference is just a few days. They needed a mom, so we Eldibrands trade with us litter of 4 kittens. One of the kittens moved to new home yesterday but the other one is still here, if someone wants a fun black male kitten. Nýjar myndir 12/12/2011
Kettlingar/Kittens 07/12/2011
Þann 28.nóv komu í heimin 5 hressir kettlingar. Nánari upplýsingar má finna undir Kettlingar/Kittens 28th of November 5 happy kittens were born. More information under Kettlingar/kittens. Sýningaúrslit 12/10/2011
Jæja... þá er seinni sýning ársins afstaðin. Oscar náði sér í CH titil og fyrsta CACIB stigið sitt. Hann var einnig uppáhald dómara á sunnudeginum og stóð sig einstaklega vel. Krakkarnir hans sem voru mætt á sýningu fengu öll frábæra dóma og Var Eldibrands Eldrún Wilde NOM á laugardegi. Eldibrands Hafrún Wilde fór uppí NOM á sunnudeginum en myndarleg MCO læða vann hana... Olympia Wilde frá Dark Queen var EX1 báða daga og NOM en Oprah systir Ex2, Tony bróðir fékk Ex1 báða dagana:) Svo Wilde systkinin stóðu sig með prýðum og fengu öll frábæra dóma sem ekki er hægt að vera annað en stoltur af. Nýtt nýtt 13/09/2011
Komnar nýjar myndir af flestum, ekki öllum. Á líka eftir að bæta inn fleirri upplýsingum og betrumbæta lýsingar á kisunum :) Breytingar og annað :) 12/09/2011
Stend í smá breytingum, vona að síðan verði þægilegri í notkun í kjölfarið :) Gömlu fréttirnar og updates 12/09/2011
28/7 2011 Undanfarið hefur verið ansi rólegt hérna heima við, kisurnar stækka og dafn5/4 2011 Sýningahelgin að baki og frábær úrslit fyrir Eldey og Oscar. Mýrar Eldey náði í sitt fyrsta meistarastig eða 1 X CAC og Björgvinjar Oscar Wilde fékk 2 x CAC, 2 X BIV og 2 X NOM // The show weekend is over and we had great results. Mýrar Eldey got her first CAC and Björgvinjar Oscar Wilde got 2 x CAC, 2 X BIV and 2 X NOM !! 11/3 2011 Nýjar myndir hingað og þangað :) // New photos here and there :) 27/2 2011 Því miður hepnnaðist gotið okkar ekki sem skyldi og misstum við 6 gullfallega kettlinga. Stefnan er þó tekin á pörun hjá okkur í haust. Nánari upplýsingar eru að finna í Kettlingar/Kittens 27/1 2011 Staðfest er að við eigum von á fjölgun í febrúar :) Uppl. er að finna í Kettlingar/Kittens 17/1 2011 Nýjar myndir af Oscari og Eldey. Svo erum við að bíða eftir fyrstu kettlingunum frá Oscari, von er á þeim hvað á hverju en múttan er Snjalla Snjólaug frá Hlíðarenda í eigu Eldibrandsræktunar. Forsíðumyndin er af Oscari að fylgjast með krumma útum gluggan. 11/1 2011 Gleðilegt nýtt ár allir =) Í dag bættist við lítill svartur hnoðri sem kallast Monsa hérna heima við en í ættbók Fíóna (ræktunarnafnið á leiðinni) og kemur að norðan. Mamma hennar er Vetrarheims Elíana Eik og pabbi hennar Björgvinjar Óliver (gotbróðir Oscars). Litla skellibjallan mætti hér eins og hún hafi aldrei búið annarsstaðar og búin að skottast um allt og gera sitt besta til að knúsa og kúra eldri kisurnar, þær aftur á móti voru ekki alveg til að byrja með að skilja þennan litla hnoðra;) Verður spennandi að sjá hvaða dóm hún fær á vorsýningu kynjakatta. 24/10 2010 Ný mynd á forsíðuna, Mýrar Siggi Sæti með verðlaunin sín eftir helgina. Myndina tók eigandi hans Hrafnhildur Laufey Hafsteinsdóttir. 17/10 2010 Þá er seinni degi lokið hjá okkur og allir komnir heim í afslöppun :) Úrslitin í dag voru Björgvinjar Oscar Wilde fékk Ex 1 en mamma hans Benz Amanda hirti BIV sem hann hirti af henni í gær ;) Mýrar Eldey fékk Ex 1, Mýrar Klaki fékk Ex 2, Mýrar Ísey Ex 2, Mýrar Jökull fékk Ex 1 og var BIV, Mýrar Siggi Sæti fékk Ex 1 og BIV en með ÖRLITLUM mun missti af NOM... Gotið var svo aftur #2 yfi got dagsins.. 4 Norsk skógarkatta got og 1 Main Coone svo við getum engan vegin kvartað yfir dómunum okkar, æðisleg sýning í alla staði! Til hamingju með úrslitin Mýrarkatta eigendur. 16/10 2010 Fyrri sýningadegi lokið og ekki hægt að segja annað en Mýrar kisur hafi staðið sig vel.. Björgvinjar Oscar Wilde BIV - Mýrar Gríma CAC - Mýrar Siggi Sæti BIS, Mýrar Ísey ex1 BIS - Mýrar Jökull ex 1 - Mýrar Klaki ex 3 - Mýrar Eldey ex3 - gotið var svo í öðru sæti af gotunum. Mýrar Ísey er svo fyrsti skráði Amber skógarkötturinn á íslandi takk fyrir:) Spennó að sjá hvernig morgundagurinn þróast :) 4/10 2010 Mýrar Nína komin með heimili:) En Mýrar Siggi gotbróðir hennar er hugsanælega að leita sér að nýju framtíðarheimili. Siggi er rauður og hvítur ljúflingur sem er ekki ætlaður til ræktunar. 21/9 2010 Mýrar Nína leitar nú að nýju heimili til að fá heilan helling af knúsi og kúri. 3/9 2010 Nú styttist óðum í næstu Sýningu hjá Kynjaköttum og af því tilefni hefur stóðið verið skráð, got Grímu og Snepils fer í dóm, eins munu Oscar, Gríma og Nína mæta, svo mætir eigandi Sigga með hann á sýninguna líka, svo það verður nánast full mæting hjá okkur. 15/8 2010 Eftir erfiða og laaaaaaaaaanga fæðingu þá er komin NÝ tölva, sú gamla gafst endanlega upp með öllu sínu innihaldi. Er að koma nýja gripnum í gang svo ég geti komið inn nýjum myndum af liðinu. Allir stækka og dafna og oft ansi fjörugt hérna á heimilinu, heppilegt að hafa gang til að hlaupa eftir;) Nína er komin heim aftur og er jafnvel að leita að nýju framtíðarheimili, annað hvort á fóðursamning eða í sölu. Ef þið hafið áhuga á að skoða það, ekki hika við að senda póst á birnavb@simnet.is eða hringja í s:8620544 14/7 2010 TÖLVAN KOMIN Í LAG hurrey :) Klaki litli(stóri) komin með heimili og rugludallarnir farnir að undirbúa að fara að heiman... 09/7 2010 Því miður stend ég í endalausum tölvuvændræðum (sem fara þó að leysast á næstu vikum) og hef því miður ekkert getað uppfært myndir eða annað hérna. Aftur á móti er Klaki komin í sölu aftur og leitar að rétta heimilinu:) 02/6 2010 Nýjar myndir af gotinu, loksins fannst blessuð snúran sem ég týndi um leið og ég var búin að kaupa hana!! 28/5 2010 Ný mynd á forsíðu af Mýrar Nínu og sambýlingum, þeim Skugga og Týr. Mýrar Siggi flytur að heima í dag, og ég er að vinna í nýju myndunum af krílunum, komin ný snúra svo allt að gerast :) 26/5 2010 Vegna smá snúruvesens (einhver lítill snillingur nagaði snúruna) þá seinkar nýjum myndum af krílinum aðeins ;) 19/5 2010 Uppfærsla á kettlingasíðu. 12/5 2010 Nýjar myndir af Oscari, nýjar myndir af kettlingunum. Nína litla flutt að heima og komin norður til Akureyrar í faðm nýju fjölskyldunnar. Bjössi er einnig farin að heiman, en hann hélt sig innan höfuðborgarsvæðisins hjá yndislegri fjölskyldu, Siggi ætlar svo til nýju fjölskyldunnar sinnar eftir tvær vikur. 05/5 2010 Nýjar myndir af goti III, krílin orðin vikugömul og heilsast vel, augu byrjuð að opnast og bumbur sístækkandi. 29/4 2010 Öllum kettlingum heilsast vel og stækka jafnt og þétt. Gríma stendur sig eins og hetja í móðurhlutverkinu :) 27/4 2010 Komnar myndir af kettlingum í nýjasta gotinu, myndirnar eru linkaðar í "Got" og "Kettlingar" 26/4 2010 Gríma búin að eignast 4 gullfallega kettlinga, fæðing gekk eins og í sögu! 24/4 2010 Nína frátekin og Björgvinjar Oscar kemur heim! Þá er Siggi kúrudýr einn eftir óseldur og bíður bara eftir rétta heimilinu. 15/4 2010 Jæja, nýja síðan um það bil að verða tilbúin. Mátti til með að hripa nokkur orð til að prufa þennan part síðunnar ;) Ath. Síðan er þó enn í vinnslu. |

